Útskriftarverk / Graduation work by Sóley






Að hýsa annarskonar þarfir og væntingar:

Verkefnið snýst um íbúðarhúsnæði og staðsetningu þess innan þéttbýlis. Unnið er með blokkarhverfi frá áttunda áratugnum í Tallinn, Eistlandi. Þetta rúmlega 100.000 manna hverfi er illræmt fyrir að vera síðasta sovét-verkefnið í Tallinn sem aldrei var fullklárað. Borgarmynstrið einkennist því af vanræktum einskismannslöndum milli einhæfra panel blokka. Engu að síður hefur hverfið Lasnamäe upp á margt að bjóða.

Nýjustu framkvæmdir hafa einkennst af ónærgætnum byggingarmössum undir verslun og þjónustu. Engu að síður er mikil hefð fyrir smærri frumkvæðum innan óformlegra rýma svo sem verslanir í kjöllurum, útimarkaðir, og garðrækt.

Tilraunir íbúa Lasnamäe til að gera yfirskalað umhverfið að heimili eru innblásturinn að íbúðum sem tengdar eru litlum verslunarhúsnæðum á jarðhæð. Hugmyndin er að búa til rými sem tengjast umhverfinu í umsjá íbúanna sjálfra. Á efri hæðunum eru stærri íbúðir með þakgörðum með útsýni yfir almenningsgarð. Húsin eru einföld og skipulag leitast við að raska sem minnst því sem fyrir er. Lóðréttir garðar vaxa upp með hliðum bygginganna.

Tilagan leitast við að vinna samhliða með þá litlu einingu sem heimilið er og flækjuna sem borgin er með það að markmiði að leggja til arkitektúr sem eykur gæði þess sem nú þegar er til staðar.

Leiðbeinendur: Inga Raukas og Toomas Tammis
EKA vor ´09

Housing alternative needs and expectations:

The project revolves around housing and it´s location within the urban fabric. The subject is a panel housing district from the eighties in Tallinn, Estonia. With over 100.000 inhabitants the area is notorious for being the last sovét-housing project in Tallinn and was never completed. The urban fabric is characterized by neglected plots in between monotonous panel blocs. Nevertheless the district of Lasnamäe has many things to offer.

Many recent building developments have been driven by insensitive solutions for commercial purposes. Nevertheless small initiatives have emerged in within informal spaces such as small shops in cellars, markets and gardening.

The residents attempts to scale down their surroundings is the inspiration of his housing project. The groundfloor has small workspaces each connected to an individual apartment above. The idea is to create a more fractioned commercial power in the area. The apartments above have roofgardens and a view over a park. The houses are small and simple in construction. Their planning seeks to make a minimum disturbance by being placed by existing streets.

The proposal is about working with the small unit of the home within the complexity of the city with the aim to contribute architecture that enhances the qualities that are already existing.

Tutors: Inga Raukas og Toomas Tammis
EKA spring ´09

No comments:

Post a Comment